La Zorra Úrúgvæ
2014
Pínu lítill lækur sem varla sést
er eins og aðrir lækir í Úrúgvæ
líka með fiska
Við brúna er meira vatn og þar er nóg
af fiski
Allur hópurinn fyrir utan mig í þessari
ferð 2014, hér er verið að taka háfa
og net úr bílnum svo veiðin geti hafist
Það fyrsta sem kom í háfinn hjá
mér var þessi skjaldbaka
Nokkrar tegundir af skjaldbökum eru í Úrugvæ
og höfum við náð nokkrum
Lítil tetra trúlegast Hemigrammus caudovittatus
Ungur Gymnogeophagus
Corydoras tegund sem ekki hefur hlotið nafn ennþá
lítill skrautfiskur sem ég veit ekki mikið
um
Loricara tegund ein af mörgum á svæðinu
Aegla skrítinn krabbi sem er skyldur kuðungakröbbum
Nokkrir Gymnogeophagus í fötu, flestir geyma síkliður
þar til veiðin er búin og ákveða
þá hvaða eintök eru tekin og hverjum er
sleppt
Þarna er Felipe aðalmaðurinn að taka mynd
í myndabúrinu og Pedro bílstjóri
að aðstoða
Gymnogeophagus " La Zorra " exmeridionalis
Australoheros með fallegt rautt auga
Crenicichla scotti ungfiskur
Corydoras í myndabúrinu
Rækja, nokkrar tegundir í landinu en þessi
fékk þann heiður að koma með mér
heim
Gotfiskur af tegundinni Jenynsia lineata, þessir fæðir
lifandi afkvæmi
Par af Gymnogeophagus " La Zorra " exmeridionalis
Drekafluga að njóta lífsins á laufi
Stutt stopp á þessum stað en
nóg af fiski