Fiðrildi og ættingjar telja yfir 150.000 tegundir í
heiminum en um 5000 af þeim tegundum er að finna í
Evrópu þannig að af nógu er að taka
í myndatöku ekki veit ég hvað ég
hef séð margar tegundir því sumar tegundir
eru mjög líkar, erfitt að komast að öðrum
til að þekkja þau, en öll eiga þau
það sameiginlegt að hafa engann áhuga á
myndartöku og er ég oft mjög stoltur þegar
mynd er náð eftir mikinn eltingarleik. Sum fiðrildi
er bara að finna á takmörkuðum svæðum
og þá þarf maður að finna út
hvar þau halda sig en önnur eru svo til allstaðar.
Þessar myndir eru teknar í Slóvakiu sumarið
2003
Þetta fiðrildi og nokkrar aðrar tegundir svo líkar
að ég þori ekki að giska á nafnið
á því en að innan eru þau fallega
blá
Þarna setti ég fiðrildið í krukku
því ég gat ekki náð af því
mynd með góðu móti í náttúrunni
( Artogeia rapae )
Uppí fjalllendi var ég alltaf að sjá
þessi brúnu fiðrildi með appelsínu
gult í vængjunum og tók nokkrar myndir en
seinna sá ég að þetta voru margar tegundir
með mismunandi bletti ( Erebia ligea )
Þarna fannst mér blómið gera meira fyrir
myndina heldur en fiðrildið
Það er magnað hvað liturinn innan og utan á
vængjunum getur verið misjafn þetta fiðrildi
er td. appelsínugult með brúnum og hvítum
skellum ofaná vængjunum ( Cynthia cardui )