Þessir eru í búrum hjá mér
ég nota þá í búrum þar sem
feimnir fiskar eru því að þegar þeir
sjá litla Guppy synda um allt eins og ekkert sé þá
róast flestir fiskar
Reyndar meiga þessir feimnu ekki vera of stórir
stundum koma engin seiði og stundum missi ég einn og
einn fullorðinn
Ég hef tekið frá karla sem fá
tvöfalt sverð og þeir njóta þeirra forréttinda
að fara ekki í búr með fiskum stærri
en þeir
þetta eru ekki einfaldir fiskar í myndatöku
til að ná góðum myndum verð
ég að taka þá og setja í minna búr
Þessir eru allir saman í 75 ltr búri
sem er ferhyrnt
þannig að þeir eru út um allt og erfitt að
taka myndir
Venjulegur Guppy er búkminni en slörguppy
og það er ekkert að hjálpa þegar myndataka
fer fram
Ég á nú eftir að taka fleiri
myndir af þessum fiskum
því þetta er góð æfing
Fiskarnir litlir , stöðugt á ferðinni, og búrið
djúpt með litlu ljósi