Villa Constitucion Úrúgvæ


Þetta vatn kemur úr stórri á og er fullt af fiski, og þá er bara að byrja að henda kastneti og sjá hvað maður dregur inn


prochilodus tegund sem verður stór og er étin af heimamönnum


Tetra, ein tegund af mörgum


Leporinus seiði, eitt og eitt kom í netið og öll í þessari stærð,
hefði verið gaman að ná fullorðnum fisk


Cichlasoma dimerus, síkliðu tegund sem væri góð í búri


Hoplias, svakalegir ránfiskar 3 tegundir í Úrúgvæ,


Gymnogeophagus balzani hrygna, tegund sem ég á eftir að eignast því hængarnir eru meiriháttar


Þarna eru leiðangursstjórinn og bílstjórinn að draga inn stóra netið


Fengurinn skoðaður, það var alltaf jafn spennandi að skoða hvað dregið var á land og alltaf sá maður nýjar tegundir


Þessi glansaði svo mikið að erfitt var að taka mynd, því miður er þessi tegund mjög viðkvæm og því hefur aldrei tekist að flytja hana út úr landinu


Seiði sem gætu alveg verið frá þessari tegund fyrir ofan


Smá fiskarnir eru af öllum stærðum


Þar sem landið hefur lítið verið rannsakað þá er erfitt að finna upplýsingar um flestar tegundir sem maður veiðir


Þessi tetra væri flott í gróðurbúri með gult auga og bláa rönd


Trachyelopterus teaguei kattfiskur, það leynast margar skrítnar kattfisk tegundir í suður ameríku


Rétt fyrir innan var smá vatn og þar var farið með háfa í leit að fiski


Þessi tegund virkar spennandi, hængurinn með rauða ugga sem gætu litið vel úr í fiskabúri


Loricara, þær voru víða og margar tegundir


Par af Cichlasoma dimerus sem kom saman í kasti


Ótrúlega gaman að skoða nýja polla og vita aldrei hvað maður veiðir næst


Hnífafiskur tekinn með háf, veiddi annan öðru vísi þegar ég setti háfinn aftur í vatnið, gleymdi að taka mynd af honum eins og af svo mörgum fiskum enda verður maður hálf ringlaður yfir öllum tegundunum sem veiðast


Dökk hrygna af Crenicichla saxatilis


Endalaust mikið af litlum tjörnum, lækjum og ám sem ekki er tími til að veiða í, ég held að maður gæti verið í nokkra daga á hverjum stað bara til að ná að veiða það helsta

 

   
Copyright © 2004 TkO-grafik.is