Route 44 klm 10


Fyrsta sinn sem ég veiði í þessum pollum sem eru með reglulegu millibili við þenna veg


Þeir eru grafnir til að taka mold og drullu í rigningum svo rörin undir veginn stíflist ekki hinum meginn er bara lítill lækur sem er ekki líklegur til að vera með mikið af fiski en nóg til samt


Einn af fyrstu fiskunum sem kom í kastnetið hjá mér var þessi plegga tegund. vel feitur og pattaralegur


Gymnogeophagus sp. high dorsal ungfiskur


Ungur Gymnogeophagus rhabdotus


þessar tetrur og eða ættingja raðaði ég á bakkan til að fá klassíska laxamynd en þessar voru bara 5-10 cm og fengu strax að synda í burtu


Einn lítill Hoplias sem verður monster með tímanum


Charax tegund, þær eru nokkrar í Úrúgvæ


Barracuda kominn á land. ótrúlegt að sjá alla þessa ránfiska og aðra saman í svona litlu vatnsmagni


Næsti pollur, þeir voru djúpir og sumstaðar náði maður ekki til botns með því að stinga veiðistönginni niður


Þegar kastneti er hennt í gruggugt vatn þá veit maður ekkert hverju maður á von á. hér fremst er Barracuda


Tetrur, margar hverjar verða stórar þótt flestar sem eru í búrum séu af minni tegundunum


Kattfiskur sem kom á stöngina. þessi tegund er frekar algeng


Charax tegund


þessi minnir mig alltaf á sae en er líklegast Apareiodon affinis


Blóðsuga er eitt af þeim kvikindum sem geta angrað mann þegar verið er að vaða í gróðri og drullu
þótt maður finni ekki fyrir þegar þær sjúga sig fastar þá bregður manni þegar þær koma í ljós


Þarna var einn kaninn kominn með 3 á löppina sem hann togaði af. ein enn hangandi á skónum.
það góða er að það stoppa strax að blæða, og hægt að fara aftur í vatnið fljótlega en blóðugur vill maður ekki vaða hvar sem er


Margar tegundir með þetta útlit og sumar þær stærri eru étnar af heimamönnum


Cichlasoma afbrigði sem var að veiðast í fyrsta sinn, ný tegund eða litarafbrigði af dimerus er ekki vitað


Tetra með stór augu sem nýtast örugglega vel til að forðast alla ránfiska sem er nóg af í öllum vatnakerfum


Ýmis kvikindi koma í háfinn þetta var um 7 cm


það gætu verið um 50 metrar á milli þessara polla og litlir lækir runnu í þá og úr en margar tegundir koma eflaust á staðinn í rigningum og flóðum og aðeins mismunandi hvaða tegundir voru á hverjum stað sem gerði þetta bara skemmtilegra


Crenicichla saxatilis hrygna í góðri stærð


Crenicichla saxatilis hængur sem ásamt hrygnunni fóru í búr hjá Felipe


Gymnogeophagus rhabdotus hængur sá stærsti sem kom í ferðinni


Hoplias vel tenntur ránfiskur, þrjár tegundir í Úrúgvæ en margar aðrar tegundir í suður-ameríku, kallast wolffish


Eftir að hafa fundið mikið af skeljum þá fattaði ég loksins að taka mynd af einni, nokkrar tegundir í vötnum og lækjum


kuðungur og vatnabjalla sem var greinilega á sterum því stærðin var hrikaleg


Gymnogeophagus rhabdotus hængurinn kominn í poka tilbúinn til flutnings


Nýja Cichlasoma kominn í poka þessir fóru til Usa en ég tók sjálfur nokkra með heim

 

   
Copyright © 2004 TkO-grafik.is