2009

Hér eru myndir af fiskum og vatnadýrum í búrunum hjá mér

Febrúar.


Nýjasta nýtt hjá mér er hreinn stofn af half black/yellow
er með tvö pör sem koma frá Luke Roebuck í Usa


Ungur Neolamprologus brichardi einn af nokkrum sem ég á


Mynd úr seiðabúri frontosa og caeruleus (gulur) fyrir aftan
og tvær tegundir af julidochromis efri er marlieri en sá neðri er dickfeldi


frontosu kerling
ég er með einn karl og 7 kerlur í Tanganyika búri


corydoras aeneus kerling að leita að mat í sandinum
er með kerlu og tvo karla. kerlingin verður stærri og breiðari og er þessi tegund ein einfaldasta corydoras í ræktun


Þessi durgur er cintrinellum sem konan á síðan 2002 þegar hún fékk sinn fyrsta og eina fisk til þessa


Ég er með 4 Neolamprologus multifasciatus 1 karl og 3 kerlingar í búri með slatta af Tanganyika seiðum og caeruleus seiðum
myndin er af karlinum sem aðeins stærri en kerling en að öðru leiti eins


hér sjást óskýrt tvö seiði frá Neolamprologus multifasciatus en parið er með nokkur seiði sem þau verja með kjafti og uggum


Ein af mörgum red cherry rækjum sem ég er með
þetta er kerling um 3 cm karlinn er litminni og helmingi minni
þessar rækjur eru frekar einfaldar og fjölga sér reglulega í búrinu hjá mér


Pundamilia nyererei karl sem er ekki í lit ég er með nokkra karla, tvær kerlur og nokkur seiði. Búrið sem þeir eru í er djúpt og slatti af gróðri og erfitt að ná af þeim mynd


Aequidens diadema farinn að jafna sig eftir Flavus í gær og fær að vera í friði í dag, ég flutti inn tvo fyrir 2 árum en annar lifði ekki sótthvína af þannig að ég á bara einn, ég hef aldrei séð þá í búðunum hér þannig að þessi gæti verið sá eini á landinu, hann er 12 cm


Ég er með 4 flavus sem eru tveir og tveir í sitthvoru búrinu en þeir fara saman í búr fljótlega


Ég er aðeins að breyta og þurfti að setja Aequidens diadema með flavus, og tók flavus hann aðeins í kennslustund um það hver væri kóngurinn


Albino karlinn stækkar ágætlega hjá mér en kerlingin stækkar hægt þau fara líka í nýtt búr á næstunni þegar ég set Malawi fiskana alla saman


Ég er með 4 Herotilapia multispinosa sem kallast regnbogasíkliða einn karl og 3 kerlur. Karlinn er búinn að parast við eina kerluna en búrið býður ekki upp á hrygningu þar sem mikið er af fiskum í búrinu og sumir frekir. þegar tími vinnst til mun ég taka það búr ( 240 ltr) í gegn.
Ég þurfti að nota það sem geymslu fyrir ýmsa fiska sem ekki passa allir vel saman en mikill gróður heldur þeim þó í skefjum


Ancistru seiði nokkra daga gamalt
parið hryngdi í búri þar sem vatnið er mjúkt og átti ég ekki von á því að það mundi hennta þeim til hrygninga, en vonandi ná seiðin að komast upp í þessu búri


annað seiði úr sömu hrygningu
þetta grænleita á bakvið eru 5 mm glerrenningar sem ég nota til að halda dælunni ofanlega í búrinu
þannig að seiðið er um 2 mm á hæð


Seiði frá Pundamilia nyererei frá Victoriu vatni í Afríku
ég er með nokkur svona seiði í einu búri og verða karlarnir mjög flottir


Epla kuðungur sem eins og nafnið gefur til kynna getur orðið vel stór en þessi er eins og golfbolti eins og er,
til að þeir verði stórir og flottir þurfa þeir að vera í sér búri eða með litlum fiskum sem láta þá í friði


Congo tetru karl, rosalega flott að sjá hóp af körlum synda saman, þeir glitra þegar ljós skín á þá, ég er með 15-16 stk en bæði karla og kerlingar


Mynd úr 240 ltr búri hjá mér sem er gróðurbúr/trjárætur, búrið var hugsað undir congo tetrur og smáfiska en hefur verið notað sem geymsla undir ýmsa fiska td. malawi síkliður sem vilja öðruvísi vatnsskilyrði en allt hefur gengið upp enn sem komið er


Rákóttur epla kuðungur
sendi þessa mynd í keppni á fiskaspjalli og hún vakti lukku og vann enda skemmtileg pósa á kuðungnum komandi niður af kókoshnetu

   
Copyright © 2004 TkO-grafik.is